| Title: | Bóluefni gegn pneumokokkum - Pneumovax |
| Authors: | Elínborg Bárðardóttir Steinn Jónsson |
| Citation: | Læknablaðið 1988, 74(6):251-4 |
| Issue date: | 15-Aug-1988 |
| Abstract: | Streptococcus pneumoniae er algengasta orsök lungnabólgu af völdum baktería og veldur oft heilahimnubólgu og eyrnabólgu meðal barna. í nýlegri rannsókn á orsökum lungnabólgu, sem gerð var á Landspítalanum, greindist 91 tilfelli á einu ári og reyndust 36% vera af völdum pneumokokka (1). Frá 15 til 30% lungnabólgutilfella fylgir blóðsýking og í þeim hópi er dánartíðni talin 20-40% (1, 2).
Pneumokokkalungnabólga her jar á folk sem virðist að öðru leyti heilbrigt og á eldra folk og sjúklinga með ýmsa langvinna sjúkdóma, svo sem lungnasjúkdóma, hjartabilun, sykursýki, nýrnabilun, skorpulifur, illkynja sjúkdóma og vanhæft milta. Dánartíðni þessara hópa hefur verið há þrátt fyrir nútíma lyfja- og gjörgæslumeðferð. Áhugi manna hefur því beinst að rannsóknum á bóluefni gegn pneumokokkum en vörn gegn pneumokokkasýkingum er fyrst og fremst talih byggja á opsónínum í sermi, komplímenti og mótefnum, sem undirbúa bakteríurnar fyrir át. í dag er mælt með notkun bóluefnis hjá þeim sem eru í mestri hættu á að sýkjast (3), þótt umdeilt sé hvort bóluefnið veiti þá vörn, sem ætlast er til hjá áhættuhópum. í þessari grein verður fjallað um þetta bóluefni, sögu þess og gerð, mótefnasvörun, aukaverkanir og gagnsemi þess hjá heilbrigðum og sjúkum. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) |
| Additional Links: | http://www.laeknabladid.is |
| Appears in collections: | Icelandic Journal Articles
|
| Files in this item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| L1988-06-74-G2.pdf | Allur texti - Full Text | 242Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.