| Title: | Lyfjameðferð við sárum í maga og skeifugörn |
| Authors: | Bjarni Þjóðleifsson |
| Citation: | Læknablaðið 1988, 74(6):237-40 |
| Issue date: | 15-Aug-1988 |
| Abstract: | Sýrulækkun
Síðastliðin 50 ár hafa hugmyndir manna um meingerð (pathogenesis) sára í maga og skeifugörn rúmast innan hugtaksins um misvægi milli árásar- og varnarþátta, sem sýndir eru í töflu I.
Framan af öldinni beindist áhugi manna mest að hlutverki saltsýru og var það skiljanlegt, þar sem einkenni sjúkdómsins tengdust mjög sýru og hún var jafnframt sá þáttur í jafnvæginu sem auðveldast var að mæla.
Lyfjameðferð snerist því um það, að halda saltsýrunni í skefjum, fyrst með sýrubindandi lyfjum, einkum alúmíníum-samböndum, síðan með andkólínergum-lyfjum. Verulegur árangur náðist ekki fyrr en H2-hemlar, símetidín og ranitidín, komu á markað upp úr 1975. Með tilkomu þessara lyfja varð bylting í meðferð sára í maga og skeifugörn. Þetta var þó aðeins áfangasigur. Ekki tókst að græða öll sár með sýrulækkandi lyfjum, 10-15% voru ógróin eftir fjórar vikur. Sérstaklega gekk illa að græða sár hjá reykingafólki. Það varð einnig fljótlega ljóst, að þótt sárin gréru vel komu þau fljótt aftur þegar meðferð var hætt. Um 80%,sjúklinga með skeifugarnarsár voru komin með sarin aftur innan árs og í þessum hópi var reykingafólki sérlega hætt. Nýir H2-hemlar hafa ekki breytt þessari stöðu, né heldur omeprazól, sem er ATP-asa-hemill og mun virkara en H2-hemlar. Einn skammtur af omeprazóli gefur nær algjört sýruleysi í maga í sólarhring og græðsla sára er mun fljótari en hjá H2-hemlum. Ekkert bendir þó enn til að omeprazól breyti náttúrulegum gangi sársjúkdómsins frekar en H2-hemlar. Algjört sýruleysi í maga til langs tíma er talið óæskilegt vegna gerlagróðurs og krabbameinshættu. Þróun í notkun sýruhemlandi lyfja hefur frekar verið á þann veg að draga úr sýruhemlun. Rannsóknir hafa sýnt, að um 86% af virkni H2-hemla við græðslu sára byggist á sýruhemlun að næturlagi (1) og einn kvöldskammtur af lyfinu virkar jafn vel og 3-4 skammtar yfir daginn.
Þar sem ekki tókst að breyta náttúrulegum gangi sársjúkdóma með sýrulækkandi lyfjum, var horfið að því ráði að gefa viðhaldsmeðferð, oft mánuðum eða árum saman. Þessu er beitt hjá sjúklingum með þrálátan sársjúkdóm og er þá lyfið ýmist gefið eftir þörfum, þ.e. tvær til fjórar vikur í senn þegar sjúklingur hefur einkenni eða samfellt árum saman og þá oftast einn kvöldskammt. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) |
| Additional Links: | http://www.laeknabladid.is |
| Appears in collections: | Icelandic Journal Articles
|
| Files in this item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| L1988-06-74-G1.pdf | Allur texti - Full Text | 380Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.