Search:
Browse by
Collection All
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
Listed communities
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet

Hirsla - Landspítali University Hospital > Miscellaneous (Önnur verk) > Icelandic > Hvað er þroskafrávik og fötlun?

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/2336/100200
    Del.icio.us     LinkedIn     Citeulike     Connotea     Facebook     Stumble it!



Title: Hvað er þroskafrávik og fötlun?
Authors: Evald Sæmundsen
Páll Magnússon
Citation: Íslenska sálfræðibókin 1993, 145-51
Issue date: 1-Apr-1993
Abstract: Hér verður ekki eytt mörgum orðum í að skilgreina hvað þroski er, svo skýra mynd hafa flestir í huga sér af því fyrirbæri. Nægir að nefna stöðugar breytingar, tengdar aldri, sem sýnilegar eru í útliti og hegðun einstaklings. Um allan heim er atburðarásin svipuð, einkum framan af ævinni, enda er hún skráð í erfðavísa hvers og eins, þótt umhverfisáhrif geti ráðið miklu um hvernig rætist úr því sem menn fá í vöggugjöf. Framvinda þroskans er gjarnan miðuð við vissa þroskaáfanga, en röð þeirra er tiltölulega fastbundin. Allir kannast við slíkar raðir þroskaáfanga, til dæmis í hreyfiþroska barna sem fara að sitja áður en þau standa og ganga með stuðningi áður en þau ganga óstudd. Ekki einasta er röðin tiltölulega fastbundin heldur einnig tímasetning hvers áfanga. Hugtökin þroskafrávik og fötlun eru nátengd þar sem algengt er að þroskafrávik valdi fötlun. Þegar hér er talað um þroskafrávik er einungis átt við frávik sem birtast sem skerðing í þroska. Ekkert er því til fyrirstöðu að ræða um þroskafrávik þegar börn eru óvenjufljót til á einhverju sviði, en hér verður hugtakið notað yfir þau frávik sem koma fram í þroskaseinkun og vitna um afbrigðilegan þroska miðtaugakerfisins.
Description: Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)
Appears in collections:Icelandic

Files in this item:
File Description Size Format View/Open
S1993-P-Magnusson-G1.pdfAllur texti - Full text2990KbAdobe PDFThumbnail
View/Open

All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.

 

OR Logo Powered by Open Repository
Valid XHTML 1.0!