| Title: | Upphaf smitvarnar og smiteyðingar : upphaf sýklalyfja |
| Authors: | Þorkell Jóhannesson |
| Citation: | læknablaðið 1989, 75(3):101-16 |
| Issue date: | 15-Mar-1989 |
| Abstract: | Tvennt skipti mestu máli fyrir þær miklu framfarir, er urðu í skurðlækningum á síðari hluta 19. aldar. Var það annars vegar tilkoma svæfinga og hins vegar upphaf smitvarnar (antisepsis) fyrir tilstilli sótthreinsiefna. Smiteyðing (disinfektion) með sótthreinsiefnum skipti hér og máli. Við svæfingum var víðast tekið strax af mikilli hrifningu, en smitvörn og smiteyðing áttu harla erfitt uppdráttar í fyrstu og var treglega við þeim tekið lengi vel.
Ástæða þessa var einkum sú, að þekking lækna á bakteríum eða öðrum sýklum var gersamlega í molum fram á 9. tug síðustu aldar. Var því lítil von til þess, að læknar hefðu almennt skilning á eða hugboð um gildi smitvarnar og smiteyðingar við skurðaðgerðir fyrr en um eða eftir 1890. Þrátt fyrir viðamikla þekkingu á bakteríufræði, er varð læknum almenn þegar á fyrri hluta 20. aldar, gætti þó enn á þeim árum sams konar tregðu, og stundum næsta furðulegrar tregðu, til þess að skynja gildi sýklalyfja við lækningar.
Hér mun fyrst verða reynt að rekja mjög stuttlega upphaf svæfinga og upphaf vísindalegrar bakteríufræði. Er það gert til þess að varpa fyllra ljósi á þau meginatriði, sem hér er fjallað um. Þá verður leitast við að rekja upphaf smitvarnar og smiteyðingar með sótthreinsiefnum svo og upphaf sýklalyfja. |
| Description: | Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open) |
| Additional Links: | http://www.laeknabladid.is |
| Appears in collections: | Science History, articles in Icelandic
|
| Files in this item: |
| File |
Description |
Size |
Format |
View/Open |
| L1989-03-75-V2.pdf | Allur texti - Full text | 4534Kb | Adobe PDF |  View/Open |
|
All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.