Search:
Browse by
Collection All
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
Listed communities
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet
bullet

Hirsla - Landspítali University Hospital > Science History (Vísindasaga) > Science History, articles in Icelandic > Keisaraskurðir á Íslandi 1930-1939 : sögulegt yfirlit III. grein

Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/2336/100143
    Del.icio.us     LinkedIn     Citeulike     Connotea     Facebook     Stumble it!



Title: Keisaraskurðir á Íslandi 1930-1939 : sögulegt yfirlit III. grein
Authors: Jón Þorgeir Hallgrímsson
Gunnlaugur Snædal
Citation: Læknablaðið 1989, 75(3):95-9
Issue date: 15-Mar-1989
Abstract: Í fyrri tveimur greinum var gerð grein fyrir þeim keisaraskurðum sem gerðir voru á Íslandi frá árinu 1865 til og með 1929 (1,2). Í töflu I eru allar aðgerðirnar teknar saman, þannig að í ljós kemur hvar aðgerð fór fram, hver læknirinn var, ábending og loks upplýsingar um afdrif móður og barns. Við nánari skoðun á töflu I sést, að ábendingar fyrir keisaraskurðum á þessu tímabili eru aðeins fjórar og af þeim eru grindarþrengsl algengust. Eftir 1920 koma fram aðrar ábendingar, svo sem fóstureitrun (preeclampsia) árið 1922 og fyrirsæt fylgja (placenta previa) árið 1925. Þetta eru því fyrstu keisaraskurðir á Íslandi sem gerðir voru vegna þessara ábendinga. Sé litið til áranna 1920-1929 kemur í ljós, að gerðar eru sjö aðgerðir vegna grindarþrengsla (pelvis contrácta) en tvær vegna fæðingakrampa (eclampsia), þrjár vegna fyrirsætrar fylgju og ein vegna hríðatruflana (dysdynamia - dystocia). Af þeim 17 keisaraskurðum sem gerðir voru á íslandi frá 1865 til og með 1929 virðist að í níu tilfellum hafi móðir og barn lifað af aðgerðir (53%). Í sex tilfellum af þessum 17 er þess getið að móðirin hafi látist (35%) en hins vegar eru mjög ófullnægjandi upplýsingar fyrirliggjandi varðandi börnin. Vitað er að stúlkubarnið sem fæddist fyrst allra með keisaraskurði á Íslandi árið 1865 dó rúmlega misseris gamalt. Í aðeins einu tilfelli öðru er talað um að barn hafi látist en það var í sambandi við keisaraskurðinn sem Páll Kolka gerði í Vestmannaeyjum árið 1925, enda var þar um mikinn fyrirburð að ræða. Í sex tilfellum eru engar upplýsingar um það hvort barnið lifði af aðgerðina og þá fyrstu vikuna á eftir.
Description: Neðst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn Skoða/Opna(view/open)
Additional Links: http://www.laeknabladid.is
Appears in collections:Science History, articles in Icelandic

Files in this item:
File Description Size Format View/Open
L1989-03-75-V1.pdfAllur texti - Full text352KbAdobe PDFThumbnail
View/Open

All items in Hirsla are protected by copyright, with all rights reserved, unless otherwise indicated.

 

OR Logo Powered by Open Repository
Valid XHTML 1.0!